COLOSSEUMRÖLT - Hringleikhúsið

2 klukkustundir

Auðvelt

þessari ferð skoðum við eingöngu Colosseum og kynnumst sögu þess og hlutverki sem stærsta hringleikahúss Rómarveldis.

Byggingin var hönnuð til að hýsa fjölbreyttar sýningar fyrir almenning, meðal annars vinsælar bardagasýningar skylmingaþræla.

Einnig skoðum við hvernig saga hringleikahússins hefur þróast og hvaða merkingu og stöðu það hefur öðlast á síðari tímum, eftir fall Vestrómverska heimsveldisins.

What's included?
    Exclusions
      Gott að vita
        • Vegna mikillar eftirspurnar getur verið erfitt að fá miða í Colosseum og Foro Romano með stuttum fyrirvara.
        • Ef greiðsluleiðin „Greiða við komu“ (Pay on arrival) er valin er hægt að gera upp í lok ferðar með reiðufé eða greiðslukorti. Einnig er hægt að millifæra á íslenskan bankareikning.
        • Allir þurfa að sýna skilríki við innganginn.
        • Ferðin hefst við Sigurboga Konstantínusar keisara, við hliðina á Colosseum
        • Við innganginn er öryggisleit sambærileg og á flugvöllum (skanni og málmleitartæki).
        • Smærri bakpokar og töskur eru leyfðar,
        • Bannað er að koma með glerflöskur, hnífa, og skæri
        • Til að flýta fyrir öryggisleit er ráðlagt að hafa aðeins nauðsynlega hluti með sér.
        • Það er einnig skylda að hafa með sér gild skilríki (má vera mynd í síma) til að sýna við innganginn
        • Rómarrölt áskilur sér rétt til að breyta leiðinni ef aðstæður í miðborginni, lokanir eða opinberir viðburðir krefjast þess.
        Nauðsynlegt að hafa með

          PERSÓNUSKILRÍKI: Samkvæmt reglum Colosseum þarf nafn hvers gests að koma fram á aðgöngumiðanum.
          Við innganginn þarf að sýna skilríki með sama nafni og er á miðanum.

          Best er að hafa vegabréf eða önnur gild myndskilríki meðferðis. Ljósmynd af vegabréfinu í síma er yfirleitt einnig samþykkt.