FORNRÓMARRÖLT - Colosseum & Forum Romano

3 klukkustundir og 30 mínútur

Auðvelt

Colosseum hringleikahúsið og Fornleifagarðurinn Forum Romano þar sem saga Rómaveldis lifnar við.
Við byrjum í Forum Romano, hjarta hins forna Rómar, þar sem við göngum um meðal tignarlegra minja eins og Domus Tiberiana hallarinnar, Sigurboga Títusar, Basiliku Emilíu, Basiliku Júlíu og margra annarra sögufrægra bygginga. Á þessu svæði var miðpunktur stjórnmála, trúarbragða og daglegs lífs í Róm til forna. Að því loknu skoðum við Colosseum að innan, stærsta hringleikahús fornaldar, þar sem skylmingaþrælar og villidýr öttu kappi fyrir framan þúsundir áhorfenda.
What's included?
    Exclusions
      Gott að vita
        • Vegna mikillar eftirspurnar getur verið erfitt að fá miða í Colosseum og Foro Romano með stuttum fyrirvara.
        • Ef greiðsluleiðin „Greiða við komu“ (Pay on arrival) er valin er hægt að gera upp í lok ferðar með reiðufé eða greiðslukorti. Einnig er hægt að millifæra á íslenskan bankareikning.
        • Allir þurfa að sýna skilríki við innganginn.
        • Ferðin hefst á Piazza del Campidoglio, fyrir framan styttuna á miðju torginu 
        • Við innganginn er öryggisleit sambærileg og á flugvöllum (skanni og málmleitartæki).
        • Smærri bakpokar og töskur eru leyfðar,
        • Bannað er að koma með glerflöskur, hnífa, og skæri
        • Til að flýta fyrir öryggisleit er ráðlagt að hafa aðeins nauðsynlega hluti með sér. 
        • Það er einnig skylda að hafa með sér gild skilríki (má vera mynd í síma) til að sýna við innganginn
        • Rómarrölt áskilur sér rétt til að breyta leiðinni ef aðstæður í miðborginni, lokanir eða opinberir viðburðir krefjast þess.
        Nauðsynlegt að hafa með

          PERSÓNUSKILRÍKI: Samkvæmt reglum Colosseum þarf nafn hvers gests að koma fram á aðgöngumiðanum.
          Við innganginn þarf að sýna skilríki með sama nafni og er á miðanum.

          Best er að hafa vegabréf eða önnur gild myndskilríki meðferðis. Ljósmynd af vegabréfinu í síma er yfirleitt einnig samþykkt.