KEISARARÖLT - Kvöldganga um hina fornu Róm

2 klukkustundir og 30 mínútur

Auðvelt

Í þessu kvöldrölti kynnumst við Fornróm þegar hitinn hefur lækkað og lýsing kvöldsins gefur minjum borgarinnar sérstakan blæ.

Röltið hefst við Colosseum, þar sem við skoðum hringleikahúsið að utan og Sigurboga Konstantínusar mikla. Þaðan göngum við eftir Via dei Fori Imperiali og njótum útsýnis yfir keisaratorgin, meðal annars Foro di Augusto, Foro di Cesare og Foro di Traiano.

Við höldum síðan upp á Kapítólhæð og skoðum Piazza del Campidoglio, torgið sem Michelangelo hannaði. Þaðan er glæsilegt útsýni yfir Foro Romano.

Röltinu lýkur á Piazza Venezia við hið tignarlega minnismerki um Vittorio Emanuele II, fyrsta konung sameinaðrar Ítalíu.

What's included?
    Exclusions
      Gott að vita
        • Ef greiðsluleiðin „Greiða við komu“ (Pay on arrival) er valin er hægt að gera upp í lok ferðar með reiðufé eða greiðslukorti. Einnig er hægt að millifæra á íslenskan bankareikning.
        • Ferðin hefst fyrir utan Colosseum Hringleikhúsið
        • Colosseum og Foro Romano fornleifagarðurin eru skoðuð að utan
        • Ferðinni lýkur á Piazza Venezia - Feneyjartorginu, 
        • Rómarrölt áskilur sér rétt til að breyta leiðinni ef aðstæður í miðborginni, lokanir eða opinberir viðburðir krefjast þess.
        Nauðsynlegt að hafa með