MARKAÐSRÖLT – Porta Portese

1 klukkustund og 30 mínútur

Auðvelt

Í Markaðsröltinu kynnumst við Porta Portese, stærsta og þekktasta útimarkaði Rómar. Þar úir og grúir af fatnaði, forngripum, listmunum og óvæntum gersemum.

Porta Portese-markaðurinn er einn sá stærsti sinnar tegundar í Evrópu og heimsókn þangað er sannkölluð sunnudagshefð meðal Rómverja. Á markaðnum má finna nær allt milli himins og jarðar: nýjan og notaðan fatnað, vintage-vörur, fylgihluti, forngripi, málverk, bækur, skartgripi, úr, húsgögn, vínylplötur, raftæki og margt fleira.

Hildur Hinriksdóttir, búninga- og textílhönnuður og reyndur leiðsögumaður, leiðir okkur um markaðinn. Hún gefur góð ráð um hvar leita má að áhugaverðum munum og hvernig hægt er að gera góð kaup. Við skoðum einnig hluta markaðarins sem heimamenn þekkja vel en gestir sem koma í fyrsta sinn ganga oft fram hjá.

Á leiðinni heimsækjum við Roberto, sem hefur selt vörur á Porta Portese á hverjum sunnudegi í um 40 ár. Röltinu lýkur síðan með léttum, ítölskum morgunverði.

What's included?
    Exclusions
      Gott að vita
        • Ef greiðsluleiðin „Greiða við komu“ (Pay on arrival) er valin er hægt að gera upp í lok ferðar með reiðufé eða greiðslukorti. Einnig er hægt að millifæra á íslenskan bankareikning.
        • Ferðin hefst við Piazza Ippolito Nievo torginu.
        • Innifalið er léttur ítalskur morgunverður.
        • Ferðinni lýkur á markaðnum svo þau sem vilja versla geta haldið áfram 
        • Við mælum með að hafa meðferðis reiðufé, helst í smærri seðlum.
        • Rómarrölt áskilur sér rétt til að breyta leiðinni ef aðstæður í miðborginni, lokanir eða opinberir viðburðir krefjast þess.
        Nauðsynlegt að hafa með