MATARRÖLT - Kræsingar í Trastevere
Í Matarröltinu kynnumst við bragði, mannlífi og andrúmslofti Trastevere. Við röltum um eitt líflegasta hverfi Rómar og smökkum á ýmsu góðgæti sem er einkennandi fyrir rómverska matargerð.
Trastevere er eitt litríkasta og líflegasta hverfi Rómar og tilvalinn staður til að kynnast matarmenningu borgarinnar. Við röltum um þröng stræti og lífleg torg og stöldrum við á völdum stöðum til að bragða á klassískum rómverskum kræsingum. Með matnum fáum við einnig vín eða bjór. Allur matur og drykkir sem boðið er upp á í röltinu eru innifaldir í verðinu.
Matarröltið snýst þó ekki aðeins um mat. Á leiðinni kynnumst við daglegu lífi, sögu og sérstöku andrúmslofti Trastevere.
Hildur Hinriksdóttir leiðir röltið. Hún er búninga- og textílhönnuður, menntuð í Róm, og hefur langa reynslu af leiðsögn. Hildur þekkir hverfið vel og leiðir gesti að nokkrum af skemmtilegustu stöðum þess.



