MIÐBÆJARRÖLT – Hjarta Rómar
Miðbæjarröltið er tilvalin leið til að kynnast borginni, fá góða yfirsýn og upplifa töfra hennar.
Röltið hefst við Spænsku tröppurnar. Þaðan liggur leiðin að Trevi-gosbrunninum og áfram að Pantheon, sem við skoðum að utan. Við höldum síðan á hið líflega Piazza Navona og ljúkum röltinu á Campo de’ Fiori, þar sem fjölbreytt mannlíf og fjöldi skemmtilegra veitingastaða. Á morgnana er á torginu jafnframt einn þekktasti markaður Rómar.





