PÉTURSKIRKJURÖLT - Vatíkanið

2 klukkustundir og 30 mínútur

Auðvelt

Péturskirkjuröltið er einstök ferð um sögu, trú og listir í hjarta Vatíkansins. Við heimsækjum eina þekktustu kirkju heims og kynnumst mikilvægi hennar í kristinni trú og meistaraverkunum sem hún geymir.
Við heimsækjum Péturskirkjuna í Vatíkanríkinu og kynnumst sögu Vatíkansins og upphafi kristninnar. Kirkjan var reist yfir gröf Péturs postula, sem samkvæmt kaþólskri hefð var fyrsti biskup Rómar og fyrsti páfinn. Hún er ein helgasta kirkja kaþólsku kirkjunnar og einn mikilvægasti pílagrímsstaður kristinna manna. Péturskirkjan er jafnframt eitt helsta meistaraverk endurreisnar- og barokktímans. Inni í kirkjunni skoðum við meðal annars Pietà-styttu Michelangelos, hið tignarlega altaristjald og altaristöflu Berninis og fjölmörg önnur glæsileg listaverk. Á leiðinni fræðumst við um sögu kirkjunnar, listamennina sem mótuðu hana og tilurð Vatíkanríkisins.
What's included?
    Exclusions
      Gott að vita
        • Ef greiðsluleiðin „Greiða við komu“ (Pay on arrival) er valin er hægt að gera upp í lok ferðar með reiðufé eða greiðslukorti. Einnig er hægt að millifæra á íslenskan bankareikning.
        • Í þessari ferð er ekki farið inn í Sixtínsku kapelluna þar sem hún er hluti af Vatíkansafninu.
        • Við innganginn er öryggisleit, svipað og á flugvelli (skanni og málmleitartæki).
        • Klæðnaður (gildir fyrir bæði karla og konur): Fatnaður þarf að ná yfir axlir og niður að hnjám. Ekki er leyfilegt að vera í of stuttum stuttbuxum eða pilsum, ermalausum treyjum eða mjög flegnum flíkum. Mælt er með að taka með sér sjal eða aðra létta flík sem hægt er að nota til að hylja axlir ef með þarf.
        • Leyfilegt er að koma með litla bakpoka eða handtösku. Stórar töskur, ferðatöskur  eða stórir bakpokar eru ekki leyfðir inni í kirkjunni (engin geymsluþjónusta er til staðar).
        • Vatn og drykkir: Það er í lagi að hafa með sér litla vatnsflösku úr plasti eða áli. Glerflöskur eru ekki leyfðar.
        • vasahnífar eru ekki leyfðir
        • Við mælum með að taka aðeins með sér það nauðsynlegasta til að flýta fyrir öryggisleit.
        • Rómarrölt áskilur sér rétt til að breyta leiðinni ef aðstæður í miðborginni, lokanir eða opinberir viðburðir krefjast þess.
        Nauðsynlegt að hafa með