TRASTEVERERÖLT – Menning & mannlíf
Trastevere er eitt af elstu og litríkustu hverfum Rómar, þröng stræti, lítil torg, veitingastaðir og kaffihús á hverju horni skapa einstakt andrúmsloft.
Við byrjum í Santa Cecilia kirkjunni og förum ofan í kjallarann þar sem við göngum um rómverska götu og sjáum minjar frá fornöld. Þaðan höldum við áfram um götur Trastevere og skoðum einnig hina margrómuðu Santa Maria di Trastevere kirkju. Á leiðinni fáum við að bragða á hrísgrjónabollunni supplí, njótum svalandi drykkjar á hverfisbarnum og heimsækjum litla súkkulaðiverksmiðju (lokað í júlí og ágúst).
Ferðin gefur innsýn í sjarma Trastevere – þar sem saga, menning og mannlíf ganga hönd í hönd. Eftir ferðina er kjörið að halda kvöldinu áfram á einum af veitingastöðunum í hverfinu.




