VATÍKANRÖLT – Sunnudagsbæn páfans og Péturskirkjan
Vatíkanröltið á sunnudögum hefst á Péturstorginu með sunnudagsbæn páfans. Síðan kynnumst við sögu Vatíkansins, upphafi kristninnar og þeim merku listaverkum sem Péturskirkjan geymir.
Ferðin hefst á Péturstorginu þar sem við hlýðum á sunnudagsbæn páfans, L’Angelus della domenica, sem hefst stundvíslega klukkan 12:00. Mikilvægt er að allir séu mættir á torgið 5–10 mínútum fyrir klukkan 12:00.
Að sunnudagsbæninni lokinni hefjum við leiðsögnina á torginu. Þar förum við yfir sögu Vatíkansins, Péturstorgsins og kirkjunnar, auk þess sem við fræðumst um upphaf kristninnar og Pétur postula.
Á sunnudögum er leiðsögn með hópa inni í Péturskirkjunni ekki leyfð fyrr en klukkan 13:30. Tímann fram að inngöngu nýtum við því til að kynnast sögunni og undirbúa það sem við sjáum inni í kirkjunni.
Að því loknu skoðum við Péturskirkjuna, sem reist var yfir gröf Péturs og geymir mörg meistaraverk endurreisnar- og barokktímans. Þar skoðum við meðal annars Pietà-styttu Michelangelos, hið tignarlega altaristjald Berninis og fjölda annarra glæsilegra listaverka.
Athugið: Í þessari ferð heimsækjum við Péturstorgið og Péturskirkjuna, sem bæði eru í Vatíkaninu. Vatíkanasöfnin og Sixtínska kapellan eru hins vegar ekki hluti af þessari ferð.



