VATÍKANSAFNARÖLT - Vatíkansöfnin og Sixtínska kapellan
Upplifðu eitt merkasta listasafn heims með íslenskri leiðsögn. Við göngum um Vatíkansöfnin og endum í hinni heimsfrægu Sixtínsku kapellu, þar sem list, saga og trúarhefð mætast á einstakan hátt.
Athugið: Ekki er hægt að bóka þessa ferð með hefðbundnum hætti. Fyrst er skráður áhugi og þarf að lágmarki 8 þátttakendur til að ferðin verði farin.
Skráningin kostar 0 € og engin greiðsla fer fram við skráningu.
Verð ferðarinnar er 170 € á mann. Að lágmarki 8 þátttakendur þurfa að skrá sig svo hægt sé að fara í ferðina.
Dagsetning og tímasetning ráðast af framboði hjá Vatíkansöfnunum.
Við höfum samband þegar lágmarksfjöldi hefur náðst og möguleg dagsetning liggur fyrir.
Greiðsla verður aðeins innheimt eftir að ferðin, dagsetningin og tímasetningin hafa verið staðfest.
Í ferðinni skoðum við nokkrar af helstu perlum Vatíkansafnanna, kynnumst sögu Vatíkansins og fáum innsýn í verk þeirra listamanna sem hafa mótað þennan einstaka stað.
Við förum um valda sali og gallerí safnsins og skoðum meðal annars:
- Höggmyndasöfn og klassískar fornminjar
- Kortasalinn (Galleria delle Carte Geografiche)
- Valin listaverk og sögulega muni úr safneign Vatíkansins
Áður en við göngum inn í Sixtínsku kapelluna fræðumst við um freskur Michelangelo, söguna á bak við þær og merkingu þeirra. Ferðinni lýkur síðan inni í kapellunni þar sem gestir fá tækifæri til að virða fyrir sér loftmyndirnar og Dómsdag Michelangelos.Ekki er hægt að bóka þessa ferð með hefðbundnum hætti. Fyrst er skráður áhugi og þarf að lágmarki 8 þátttakendur til að ferðin verði farin. Dagsetning og tímasetning ráðast af framboði hjá Vatíkansöfnunum. Við höfum samband þegar næg þátttaka og möguleg dagsetning liggja fyrir.


